Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: FÉLA2AA05
Í áfanganum fá nemendur kynningu á kynjafræði, jafnréttisbaráttu innanlands sem utan og helstu hugtökum og kenningum sem tengjast femínisma og kynjakerfinu. Nemendur fá innsýn í margbreytileika mannlífsins og þjálfast í að skoða heiminn í gegnum kynjagleraugun. Fjallað verður um sögu jafnréttisbaráttunnar, hinseginfræði fjölmiðla, ofbeldi, karlmennsku, vinnumarkaðinn, stjórnkerfið o.fl. þætti samfélagsins út frá kyni. Nemendur munu m.a. rýna í fjölmiðla, bækur og kvikmyndir og leysa verkefni þar sem hugtök kynjafræðinnar eru nýtt til að rýna í þeirra persónulega líf.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu kenningum og hugtökum kynjafræðinnar
- stöðu kynjanna í íslensku samfélagi, fyrr og nú
- staðalmyndum um kvenleika og karlmennsku
- kynjuðum neysluvenjum
- klámi og áhrifum þess á kynheilbrigði
- kynbundnu ofbeldi og mörgum birtingarmyndum þess.
- áherslum hinsegin fræða
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita grunnhugtökum kynjafræðinnar
- setja upp kynjagleraugun, þ.e. skoða veröldina út frá sjónarhorni kyns og kynferðis
- greina stöðu og staðalmyndir kynjanna í fjölmiðlaefni, námsefni og almennri umræðu
- taka þátt í umræðum og koma skoðunum sínum og hugmyndum á framfæri
- beita gagnrýninni hugsun og hugtakanotkun
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja helstu orsakir kynjaskekkjunnar samkvæmt hugmyndum kynjafræðinnar
- auka þátttöku sína í samfélaginu með jafnrétti að leiðarljósi
- sýna sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum