Fyrir hverja: Allar brautir
Námsefni: Efni frá kennara
Forkröfur: LÍFF1GL05
Námsmat: Símat
Annað: Áfanginn telst til sérgreina heilbrigðisbrautar, náttúrufræðibrautar og raungreina- og tæknibrautar
Áfanginn er grunnur í þjálfunarlífeðlisfræði. Farið verður í næringu íþróttamanna og orkukerfi líkamans og áhrif þjálfunar á frammistöðu orkukerfanna. Áhrif umhverfisþátta á líkamann við þjálfun verða skoðuð þ.e. þjálfun í hita, kulda og í hæð. Farið verður í undirstöðuatriði í byggingu og starfsemi vöðva og áhrif þjálfunar á hjarta- og beinagrindarvöðva. Fjallað verður um frammistöðubætandi aðferðir og lyfjamisnotkun í íþróttaheiminum.