Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÆSI2NÁ10 og LÍFF1FL05
Fyrir: Allar brautir nema náttúrufræðibraut þar sem áfanginn er í brautarkjarna
Námsmat: Símat
Námsefni: Frá kennara
Annað: Áfanginn telst til sérgreina heilbrigðisbrautar og raungreina- og tæknibrautar
Í áfanganum er fjallað um helstu vistferla í vistkerfum, hringrásir, fæðutengsl, stofna og framvindu. Fjallað er um áhrif vistbreytinga á loft, láð og lög. Sérstaklega eru valin íslensk vistkerfi, landlæsi, gróður, jarðvegsrof og vistheimt. Farið er í náttúrusiðfræði og sjálfbæra þróun í umræðutímum og í verkefnavinnu. Viðfangsefni tengjast nærumhverfi nemenda og samfélagi en taka um leið mið af því sem gerist í umheiminum. Umhverfismál eru í brennidepli í áfanganum og fjallað um gróðurhúsaáhrif, ósonlagið, súrnun sjávar, hringrásir efna, hnattræn umhverfisáhrif og alþjóðleg samvinnu og stefnumörkun í umhverfismálum. Sjónum verður sérstaklega beint að áhrifum hnattrænnar hlýnunar á norðurhjara, þ.m.t. Ísland, regnskóga, hafið, loftlagsbreytingar, vatn í veröldinni, landið, eldsneyti og ferðaþjónustu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sviði vist- og umhverfisfræði með sérstakri áherslu á sjálfbærni.
- Einnig skal hann hafa getu til að nýta þessa þekkingu sína í verkefnum tengdum umhverfismálum.
- í lok áfanga skal nemandi gera sér grein fyrir eigin ábyrgð í umhverfismálum og hvernig hann getur miðlað reynslu sinni og þekkingu til góðs í átt að sjálfbærni.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla sér gagna á gagnrýninn og ígrundaðan hátt og vinna lausnamiðað með álitamál sem upp kunna að koma
- rökræða og rökstyðja mál sitt í ræðu og riti
- Efla hæfileikann til að bregðast við nýjum og krefjandi aðstæðum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja eigin viðfangsefni og takast á við þrautir, beita gagnrýninni hugsun, vinna með álitamál og meta mögulegar lausnir
- vera fær um að lesa í náttúruna og vera meðvitaður um gildi, viðhorf og tilfinningar sínar gagnvart hnattrænum áhrifum og jafnræði jarðarbúa
- Auka víðsýni og styrkja viðhorf sitt til umhverfismála.
- Efla siðferðisþroska svo hann eigi auðveldara með að setja sig í spor annarra.