Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: FÉLA3ST05

Nemendur vinna að einu stóru rannsóknarverkefni að eigin vali: eigindlega rannsókn, megindlega rannsókn eða yfirlitsrannsókn. Nemendur ákveða sjálfir viðfangsefni innan félagsvísindanna í samráði við kennara og í lok annar skila þeir ritgerð og kynna rannsóknarverkefnið ítarlega. Áfanganum er ætlað að skerpa undirbúning nemenda fyrir háskólanám, sérstaklega hvað varðar verklega leikni og hæfni til að afla áreiðanlegra gagna, vinna úr þeim og koma niðurstöðum sínum á framfæri. Í áfanganum fá nemendur tækifæri til að draga saman reynslu og fyrra nám í verkefnavinnu sinni. Nemendur þurfa að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum, virkni, frumkvæði og þjálfa skipulagshæfileika sína, enda skipuleggja þeir vinnu sína undir almennri verkstjórn kennara. Gott tækifæri gefst til sérhæfðar þekkingaröflunar og þjálfunar í aðferðafræði félagsvísindanna.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnatriðum í aðferðafræði félagsvísinda
  • þeim viðfangsefnum sem hann velur sér að fjalla um í áfanganum, t.d. á sviði félagsfræði, sálfræði eða uppeldisfræði
  • hvernig helstu íslensk og erlend gagnasöfn eru uppbyggð
  • hvernig skal byggja upp og setja fram áheyrilegan fyrirlestur
  • reglum er varða siðferði í rannsóknum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita viðurkenndum aðferðum í heimildaleit og öflun frumgagna
  • vinna úr heimildum og setja þær fram á agaðan og viðurkenndan hátt
  • skrifa vel upp setta og ígrundaða rannsóknarritgerð
  • kynna eigin niðurstöður fyrir öðrum
  • gagnrýna framkvæmd og niðurstöður annarra á uppbyggilegan hátt
  • vinna með öðrum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja rannsóknaraðferðir og tjáningarform sem hæfa viðfangsefninu
  • leggja mat á heimildir, gagnrýna þær og draga af þeim ályktanir
  • beita fræðilegu sjónarhorni við eigin gagnavinnslu og gagnaöflun
  • tjá sig og miðla þekkingu, hugmyndum og skoðunum fyrir framan hóp, bregðast við gagnrýni og sýna útsjónarsemi í óvæntum aðstæðum