Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LEIK3LS05
Í áfanganum verður farið í grunnþætti verkefnastjórnunar og framleiðslu. Nemendur draga saman alla þá þekkingu, hæfni og leikni sem þeir hafa tileinkað sér í náminu og vinna eigið sviðsverk frá grunni. Verkið verður síðan sýnt í lok annar í Samkomuhúsinu á Akureyri. Áhersla verður lögð á að sýn og eldmóður nemandans fái að njóta sín í verkefninu og hann sýni fram á öguð, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- verkefnastjórnun í leikhúsi
- eigin sýn og styrkleikum í sviðslistasköpun
- öllum þeim þáttum sem koman saman í uppsetningu sviðslista
- verkferlum í tengslum við styrkumsóknir og lokaskýrslur
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna að eigin sviðslistasköpun
- framkvæma og fylgja verkefni frá fyrstu hugmynd að lokasýningu
- miðla færni sinni og kunnáttu til annarra
- umbreyta eldmóð sínum í agaða sköpun með skýra heild
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna sjálfstæði, aga og frumleika í sköpun og vinnu
- leiða hugmyndavinnu og framkvæmd sviðslistaverkefnis
- geta tjáð sig á uppbyggilegan og skilvirkan hátt um eigin styrkleika og veikleika í sviðslistasköpun
- setja sér markmið, gera verkáætlanir og fylgja þeim
- tjá sig í rituðu og töluðu máli um framleiðslu og skipulag á framkvæmd sviðlist