- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Markmið áfangans er að nemendur öðlist þekkingu á grundvallarþáttum næringarfræðinnar. Þeir verði færir um að draga sjálfstæðar ályktanir um hollustuhætti og meðvitaðir um eigin ábyrgð á góðri næringu og heilsu, ásamt því að þekkja samspil næringar og hreyfingar. Fjallað verður um næringarefni, hlutverk þeirra og eiginleika og í hvaða fæðutegundum þau finnast. Nemendum verður kennt að nota næringarefnatöflur við útreikninga á orku og orkuþörf mismunandi hópa og einstaklinga. Í áfanganum er fjallað um holdafar, hreyfingu og meltingu helstu næringarefna. Fjallað verður um máltíðaskipan, skammtastærðir, fæðuflokka, fjölbreytni og mikilvægi hvers fæðuflokks. Einnig verður fjallað vítamín, steinefni og orkuefni. Leitast verður við að tengja námsefnið áhugasviði nemenda. Að áfanga loknum á nemendum að vera ljóst hvers virði góðar neysluvenjur eru fyrir Íslendinga sem heilbrigða þjóð. Nemendur eiga að loknu námskeiðinu að vera færir um að mynda sér skoðanir á næringu og lífsstíl og hvernig nýta megi ráðleggingar landlæknis til að temja sér farsælar neysluvenjur.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Menntaskólinn á Akureyri
Eyrarlandsvegi 28
600 Akureyri
Kt. 460269-5129
Skrifstofutími
Mán - fim 08:00 - 16:00
Föstud 08:00 - 14:00
Lokað í hádeginu 12:00 - 13:00
Lokað um helgar
Ritstjórn: Brynjar K. Óttarsson, Eyrún Huld Haraldsdóttir og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir