Þriðja greinin um afvopnunarmál eftir fund Reagans og Garbatsjov í Höfða í október 1986 birtist í sk…
Þriðja greinin um afvopnunarmál eftir fund Reagans og Garbatsjov í Höfða í október 1986 birtist í skólablaðinu vorið 1987

Um þessar mundir eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða. Tveir nemendur í 3. bekk Menntaskólans á Akureyri ræddu vígbúnaðarkapphlaup og kalt stríð á síðum Munins haustið 1986 í kjölfar fundarins. Í tilefni tímamótanna rifjum við upp greinaskrif þeirra félaga Ófeigs Arnar Ófeigssonar (Vígbúnaðarkapphlaup) og Hlyns Hallssonar (Friður eða vígvæðing). Komið er að þriðju og síðustu greininni. Hana skrifaði Ófeigur en greinin ber titilinn  „Spjall um kjarnorkuvopn“. Greinin birtist í skólablaðinu vorið 1987.

 

Spjall um kjarnorkuvopn

 

 
Kæru nemendur.

Þriðjudaginn 16. des. síðastliðinn kom út okkar háttvirta skólablað Muninn. Þar á síðum má finna athyglisverða grein eftir Hlyn Hallsson, félaga minn í ritstjórn. Greinin sú er um vígbúnaðarmál og í henni viðrar Hlynur skoðanir sínar, tiplar á nokkrum "staðreyndum" og vitnar ranglega í grein mína, "Vígbúnaðarkapphlaup", sem birtist í Munin, þeim fyrsta er gefinn var út á þessu skólaári.

Áðurnefnd atriði voru því hvatar að því að grein sú er hér fer á eftir braust út úr hugskoti mínu.

1. HLYNUR talar um hungursneyð og fátækt.

Ef við tökum Eþíópíu sem dæmi þá sjáum við að ríkistjórnin þar í landi, (kommúnistastjórnin sem keypti allt viskýið), gerir ekki snefil til að bjarga nokkru og stendur það henni þó næst.

2. HLYNUR talar um að í ár verði um 900 milljörðum dollara eytt til hermála.

Það verður að athuga að þessir peningar eru ekki sprengdir í loft upp, heldur eru þeir að miklu leyti endurgjald fyrir vinnu hundruða þúsunda manna um heim allan.

3. HLYNUR talar um að á síðustu árum hafi margar friðarhreyfingar verið stofnaðar, víða um heim.

Þessi þrjú orð, "víða um heim", takmarkast því miður eingöngu við vesturlöndin og hver er sanngirnin í að heimta einhliða afvopnun. Þar að auki vill oft brenna við að svona friðarhreyfingar séu með alls konar öfgasinnuð uppátæki, s.s. fánabrennslur og hvað eina og því spyr ég: á að taka mark á þannig fólki?

4. HLYNUR talar um að stofnuð hafi verið samtök lækna gegn kjarnorkuvá og að þeir viti betur en aðrir hvaða afleiðingar kjarnorkustríð hafi.

Það þarf ekki hámenntaða lækna til að benda á hættuna sem er samfara notkun kjarnorkusprengjunnar. Hinsvegar er þetta barnaleg röksemd þar sem einmitt þessi áhrif sem læknasamtökin nefna, eru grundvöllur ógnarjafnvægisins sem flestir telja að tryggt hafi frið í okkar heimshluta undanfarna áratugi. Beiting vopna verður, eðli málsins samkvænt, að geta haft skaðvænlegar afleiðingar, annars þjónuðu þau litlum tilgangi.

5. HLYNUR talar um að fólk sé farið að sjá hvað hægt sé að gera í krafti sameiningarinnar.

Þó að fólk sé farið að sjá hvað hægt sé að gera í krafti sameiningarinnar þá er það svo einfalt að sá kraftur er ekki til og verður ekki til meðan járntjaldið, mörk ófrelsisins, lokar fólk af og heftir samskipti milli þjóða. +

6. HLYNUR talar um tilraunabann Sovétríkjanna á kjarnorkusprengjum og að Bandaríkjamenn hafi virt það að vettugi.

Hvað halda menn að tilraunabann hafi að segja? Auðvitað skiptir tilraunabann ekki nokkru máli þegar hægt er að eyða jörðinni nokkur hundruð sinnum með því sem þegar er til. Sovétmenn eru einungis að reyna að hindra framgang geimvarnaáætlunarinnarf en kjarnorkutilraunir Bandaríkjamanna eru einmitt í sambandi við hana.

7. HLYNUR talar um að fulltríi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu um tillögu Svíþjóðar, Mexíkó og fleiri þjóða um algera "frystingu" á framleislu kjarnorkuvopna.

Hvernig í ósköpunum ætla fulltrúar SÞ að ábyrgjast "frystingu" á framleiðslu kjarnorkuvopna? Það er einfaldlega ekki hægt.


8. HLYNUR talar um að margt hafi verið rætt og ritað misjafnlega gáfulegt, um geimvarnaáætlunina. Hún eigi ekki að vernda fólk, heldur einungis skotpalla og eldflaugar.

Rétt er það að margt hafi verið rætt og ritað misjafnlega gáfulegt um geimvarnaáætlunina en Skotpallakenningin hans Hlyns sló nú öllu við. Geimvörnin á að miða að því að hægt verði að eyða sprengjunum áður en þær eyða skotmörkum sínum niðri á jörðinni. Þess vegna hlýtur hún að vernda fólk. Þó hlytu Sovétmenn að vera allra þjóða heimskastir ef þeir ætluðu að eyða skotpöllunum, löngu eftir að eldflaugarnar væru farnar af þeim!!!

9. HLYNUR talar um að auðvelt væri að eyðileggja geimvörnina.

Kerfi sem auðvelt væri að eyðileggja ætti ekki að þurfa að skelfa Sovétmenn eins og raun ber vitni.

10. HLYNUR talar um að grein mín sýni sjálf fram á tilgangsleysi geimvarnaáætlunarinnar og m.a. vitnar hann í hana.

En Hlynur hefur greinilega ekki verið með fattarann í gangi við lestur greinar minnar því setningin sem hann vitnar í var slitin úr samheingi við annað í textanum og fékk við það aðra merkingu, sem Hlyni hefur eflaust litist betur á. Lítum á málið:

"Margir hafa bent á að Bandaríkjamenn ætli að koma sér upp slíku kerfi til þess að geta óhræddir hótað Sovémönnum kjarnorkustyrjöld eða jafnvel gert árás á þá. Hvílík vitleysa, Sovétmenn beindu einfaldlega flugskeytum á önnur skotmörk og kiarnorkuvetur og gífurleg mengun yrði óhjákvæmileg. Hins vegar gætu Bandaríkin orðið óhult undir slíku kerfi þótt Gaddafi kæmist yfir eina eldflaug eða svo".

Textinn hér að framan er brot úr fyrri grein minni og undirstikaða setningin er sú setning sem Hlynur vitnaði í. Það sér hver maður að merking hennar breytist sé hún lesin samhengislaust.

11. HLYNUR talar um að leysivopnin geti hrundið af stað nýju vígbúnaðarkapphlaupi sem gæti haft skelfilegar afleiðingar í för með sér.

Það er í raun fátt um þetta að segja, allir vita að leysivopnin eru ekki líkt því eins hættuleg eins og kjarnorkuvopn en geta vissulega haft skelfilegar afleiðingar í för með sér. Það getur brauðhnífur reyndar líka.

12. HLYNUR talar um að stjörnustríðsáætlunin og leysivopnin hafi staðið í vegi fyrir sögulegu samkomulagi á Reykjavíkurfundinum.

Vissulega var það geimvarnaáætlunin sem stóð í vegi fyrir því að Sovétmenn vildu semja. En ef hún hefði ekki gert það er aldrei að vita nema eitthvað annað hefði gert það enda er almennt álitið að hvorugur leiðtoganna hafi haft nokkurt umboð til að ná nokkru "sögulegu samkomulagi". En af því að Reagan vildi ekki hætta við að verja land sitt og sleppa geimvörninni þá er litið á hann sem herskáan brjálæðing. Ef Reagan hefði slitið samningaviðræðunum t.d. vegna síendurtekinna brota Sovétmanna á mannréttindaákvæðum Helsinkisáttmálans, þá hefði samt verið litið á hann sem herskáan brjálæðing, ekki satt? Staðreyndin er bara sú að Sovétmenn komu ekki svo mikið sem sentimeter á móti Bandaríkjamönnum, heldur var það einungis ásetningur þeirra að knésetja geimvarnaáætlunina og þegar það tókst ekki hentu þeir skít í þá og unnu eina lotu í áróðursstríðinu fyrir vikið. Í raun þarf geimvarnaáætlunin ekki að vera nein fyrirstaða ef Sovétmenn koma með réttu hugarfari til viðræðnanna.

13. HLYNUR talar um að á kirkjuþing hafi verið hvatt til þess að Ísland yrði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði.

Ísland hefur nú þegar verið lýst kjarnorkuvopnalaust svæði.

Með þessum 13 atriðum tel ég mig hafa gert greininni hans Hlyns nokkuð góð skil. Lifið heil.


Ófeigur Örn Öfeigsson.

 

Heimild: Muninn 59. árgangur, 3. tbl.