Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: HEIL1HL02 eða HEIL1HN02
Eitt meginmarkmið áfangans er að nemendur fái fjölbreytta hreyfingu eftir áhuga hverju sinni og hafa val á milli þess að fara í líkamsræktarsal, jóga og þrek í heitum sal eða boltaíþróttir. Í líkamsræktarsal er unnið sjálfstætt eftir áætlun þar sem sett eru markmið og unnið markvisst að þeim. Í heitum sal er unnið með jógaæfingar og stöður annars vegar og þol og styrktaræfingar hins vegar. Í boltaíþróttum eru teknar fyrir helstu boltagreinar og leikir auk spaðaíþrótta.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- markmiðssetningu hvað varðar eigin heilsurækt
- að þekkja líkama sinn og auka líkamsvitund sína
- forvarnargildi almennrar heilsuræktar og hreyfingar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- öðlast leikni í líkamsbeitingu og vinnutækni
- greina hvað líkami og hugur þarfnast við mismunandi aðstæður
- taka sjálfstæðar ákvarðanir í heilsurækt sinni
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna sjálfstæð vinnubrögð
- meta heilsufarslegt ástand sitt og brugðist við því
- geta unnið með öðrum og verið hvetjandi
- bera ábyrgð á eigin heilsu