Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: HEIL1HL02 eða HEIL1HN02
Meginefni áfangans er að sinna fjölbreyttri grunnþjálfun og hreyfingu í gegnum leiki. Farið er í skyndihjálp með sérstakri áherslu á endurlífgun og íþróttameiðsli.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi þess að geta brugðist við þegar komið er að slysstað
- einkennum meiðsla við íþróttaiðkun, geta greint þau og brugðist skynsamlega við
- fjölbreyttri grunnþjálfun, þol, styrk og liðleika
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- forgangsraða á slysstað
- beita endurlífgun
- bregðast rétt við dæmigerðum íþróttameiðslum
- vinna með mismunandi aðferðir til að sinna grunnþjálfun
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- kalla eftir aðstoð á slysstað, bregðast rétt við aðstæðum og gera sitt besta til að bjarga mannslífum
- beita réttum aðferðum við bráða íþrótta- og álagsmeiðslum
- stunda hreyfingu sér til heilsubótar og ánægju bæði innan og utan skóla