- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Nemendum gefst hér kostur á að hreyfa sig sér til heilsubótar bæði líkamlega og andlega. Skipulögð hreyfing er þrisvar sinnum í viku. Allir eru að minnsta kosti tvo daga í ræktinni og ef þátttaka er góð verður einn dagur í íþróttahúsi, annars eru þrír dagar í ræktinni. Leitast er við að hafa hreyfinguna sem fjölbreyttasta og nemendur studdir í því að vinna sjálfstætt eftir fyrirfram ákveðinni áætlun í ræktinni. Nemendur útbúa sína eigin áætlun einir og sér eða í samvinnu við íþróttakennara. Þeir setja áætlunina upp í XPS forrit, halda þar æfingadagbók sem heldur utan um allar mælingar. Auk þess er hægt að nota forritið til þess að halda utan um mataræði. Boðið verður upp á margskonar boltaíþróttir, hópefli í gegnum leiki, jóga og fleira. Fjallað verður um heilsutengd efni eins og matarræði, fæðubótarefni, lyfjamisnotkun og fleira.
Fyrir: Allar brautir
Forkröfur: HEIL1HL02 og HEIL1HN02
Námsmat: Mæting, vinnusemi og virkni. Gerð og framkvæmd æfingaáætlunar ásamt ýmsum smærri verkefnum
Annað: Áfanginn telst ekki til sérgreina brauta
Menntaskólinn á Akureyri
Eyrarlandsvegi 28
600 Akureyri
Kt. 460269-5129
Skrifstofutími
Mán - fim 08:00 - 16:00
Föstud 08:00 - 14:00
Lokað í hádeginu 12:00 - 13:00
Lokað um helgar
Ritstjórn: Brynjar K. Óttarsson, Eyrún Huld Haraldsdóttir og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir