Innritun nýnema í MA stendur yfir

Innritun í Menntaskólann á Akureyri og aðra framhaldsskóla stendur nú yfir. Innritunin er eingöngu rafræn. Allar upplýsingar eru á Menntagátt.

Lesa meira

Heimavist og mötuneyti á óbreyttu verði

Óbreytt verð verður á heimavistinni næsta vetur, hvort tveggja leiguverð á herbergjum og mötuneytiskostnaður. Umsóknafrestur er ti 12. júní.

Lesa meira

Fyrsti prófdagur

Í dag er fyrsti dagur vorannarprófa í Menntaskólanum á Akureyri. Síðasti reglulegur prófdagur er 5. júní, en sjúkra- og endurtökupróf eru dagana 8. - 12. júní.

Lesa meira

Sparifatadagur og kaffisamsæti

Í dag var síðasti heill kennsludagur í skólanum og að því tilefni komu fjórðubekkingar í skólann í betri fötunum og buðu kennurum og starfsfólki í kaffi á Gamla Sal.

Lesa meira

Fuglaskoðun

Nokkrir nemendur í LÍF 123 fóru í gær í fuglaskoðun í Krossanesborgum og sáu margar tegundir fugla og fjölmörg hreiður.

Lesa meira

Grænfáninn við MA

Í gær, föstudag, var grænfáninn dreginn að húni við Menntaskólann á Akureyri.

Lesa meira

Ellefu styrkir til nýnema við HÍ

Ellefu styrkir verða veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands 16. júní nk. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands.

Lesa meira

Ólöglegar bílastöður

Í dag er fyrsti dagurinn sem bílastæði MA eru undir eftirliti starfsmanna bílastæðasjóðs Akureyrar. Mjög mikið er um að bílum sé lagt ólöglega við skólann og heimavistina.

Lesa meira

Styrktarvideó

Nemendur í þróunarlandafélagsfræði beita ýmsum aðferðum til að safna fé til styrktar skólahaldi fyrir fátæk börn í þróunarlöndum. Meðal annars er vídeókvöld núna á miðvikudag.

Lesa meira

Auglýsingasálfræði

Í horninu við skólaspjaldið á Hólum, á milli stofu H6 og H7, eru nú sýndar möppur nemenda sem hafa í vetur stundað nám í auglýsingasálfræði.
Lesa meira