bolti, framhald - þrek, jóga, Íþróttir í 3. bekk

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: HEIL1HL02 eða HEIL1HN02
Eitt meginmarkmið áfangans er að nemendur fái fjölbreytta hreyfingu eftir áhuga hverju sinni og hafa val á milli þess að fara í líkamsræktarsal, jóga og þrek í (heitum) sal eða boltaíþróttir. Í líkamsræktarsal er unnið sjálfstætt eftir áætlun þar sem sett eru markmið og unnið markvisst að þeim. Í (heitum) sal er unnið með jógaæfingar og stöður annars vegar og þol og styrktaræfingar hins vegar. Í boltaíþróttum eru teknar fyrir helstu boltagreinar og leikir auk spaðaíþrótta.

Þekkingarviðmið

  • markmiðssetningu hvað varðar eigin heilsurækt
  • að þekkja líkama sinn og auka líkamsvitund sína
  • forvarnargildi almennrar heilsuræktar og hreyfingar

Leikniviðmið

  • öðlast leikni í líkamsbeitingu og vinnutækni
  • greina hvað líkami og hugur þarfnast við mismunandi aðstæður
  • taka sjálfstæðar ákvarðanir í heilsurækt sinni

Hæfnisviðmið

  • sýna sjálfstæð vinnubrögð
  • meta heilsufarslegt ástand sitt og brugðist við því
  • geta unnið með öðrum og verið hvetjandi
  • bera ábyrgð á eigin heilsu
Nánari upplýsingar á námskrá.is