lífeðlisfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: LíFF1GL05 og EÐLI2A05
Meginefni áfangans er mannslíkaminn í heild sinni. Öll helstu líffærakerfi mannsins eru tekin fyrir; taugakerfi, innkirtlakerfi, loftskiptakerfi, hringrásarkerfi, meltingarfærakerfi, þveitikerfi, skynkerfi, stoðkerfi og æxlunarfærakerfi. Einstök líffæri eru skoðuð innan hvers líffærakerfis með áherslu á staðsetningu, gerð og virkni og starfsemi hvers þeirra tengd við önnur líffæri og líffærakerfi. Aðaláhersla áfangans er á lífeðlisfræði mannsins, þó nokkur dæmi séu tekin hjá öðrum dýrategundum til samanburðar.

Þekkingarviðmið

  • hvaða líffæri raðast saman innan hvers líffærakerfis
  • staðsetningu og stærð líffæra í líkamanum
  • helstu vefjagerðum líffæra
  • eðlilegri virkni hvers líffæris
  • samstarfi og samhæfingu líffæra
  • samvægi innan líkamans

Leikniviðmið

  • þekkja líffæri hvers líffærakerfis
  • staðsetja hvert líffæri innan mannslíkamans
  • tengja vefjagerðir líffæra við starfsemi þeirra
  • greina óeðlilega starfsemi líffæra frá eðlilegri
  • þekkja ýmsa innri og utanaðkomandi áhrifavalda á starfsemi líffæra
  • skilja hvernig hvert líffæri er líkamanum nauðsynlegt til að mynda heild sem virkar eðlilega

Hæfnisviðmið

  • skilja tengsl einstakra líffæra og líffærakerfa
  • átta sig á staðsetningu og tengslum líffæra
  • átta sig á þegar að starfsemi einstakra líffæra verður óeðlileg
  • gera sér grein fyrir hvaða afleiðingar óeðlileg starfsemi líffæra hefur á önnur líffæri og líkamann í heild sinni
  • geta nýtt sér þekkingu sína í daglegu lífi
Nánari upplýsingar á námskrá.is