Jóga 1

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Nemendur eru verklegum jóga- og þrektímum í íþróttasal. Viðfangsefnin sem tekin eru fyrir eru annars vegar jógaæfingar og stöður, pilates kvið- og bakæfingar, teygjur og slökun og hins vegar þrektímar þar sem unnið er með þol- og styrktaræfingar þannig að nemendur fái fjölbreytta þjálfun. Nemendur læra um ávinning hverrar æfingar og efla líkamsvitund sína.

Þekkingarviðmið

  • gildi þess að þekkja líkama sinn og auka líkamsvitund sína
  • mikilvægi þess að styrkja sig jafnt andlega sem líkamlega
  • forvarnargildi líkamsræktar

Leikniviðmið

  • gera einfaldar jógaæfingar s.s. sólarhyllingu og aðrar grunn jógastöður
  • gera sér grein fyrir hvaða áhrif jógastöður hafa á líkamann
  • nýta sér slökun í daglegu lífi
  • nýta þrek og þolæfingar í bland við jógaæfingar til uppbyggingar líkamans

Hæfnisviðmið

  • finna út hvaða heilsurækt hentar honum
  • geta bjargað sér sjálfur með einfaldar jógaæfingar
  • auka núvitund sína
Nánari upplýsingar á námskrá.is