Brautin veitir góðan almennan undirbúning fyrir nám á háskólastigi, sérstaklega í tungumálum og öðrum hugvísindum. Einkennisgreinar brautarinnar eru einkum erlend tungumál, íslenska, saga, menning og miðlun.

Forkröfur

Almenn inntökuskilyrði eru að nemendur hafi hlotið B eða hærra í ensku, íslensku og stærðfræði á grunnskólaprófi. Ef fleiri sækja um skólann en hægt er að innrita áskilur skólinn sér rétt til að velja þá nemendur sem hann telur hafa bestan undirbúning hverju sinni. Nánar er kveðið á um inntökuskilyrði í skólanámskrá.

Skipulag

Nám á mála- og menningarbraut er fyrst og fremst bóklegt og áhersla lögð á nám í tungumálum og öðrum hugvísindum. Skipulagið byggir bæði á bekkjar- og áfangakerfi.

Námsmat

Í skólanum er lögð áhersla á fjölbreyttar aðferðir við námsmat sem fer fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun kennara, í samræmi við skólanámskrá.

Reglur um námsframvindu

Lágmarkseiningafjöldi á brautinni er 200 einingar. Fullt nám er að meðaltali 33 einingar á önn. Lágmarkseinkunn er 5 í öllum áföngum. Í áfangalýsingum koma fram skilyrði um undanfara og í skólananámskrá er kveðið á um reglur um námsframvindu og skólasókn.

Hæfnisviðmið

  • takast á við nám á háskólastigi, sérstaklega í tungumálum og öðrum hugvísindum
  • hafa náð færni í þeim tungumálum sem hann hefur valið að leggja stund á
  • vera læs á menningu og siði ýmissa menningar- og málsamfélaga og bera virðingu fyrir ólíkum menningarheimum
  • geta tjáð sig skýrt og skipulega í ræðu og riti og fært rök fyrir skoðunum sínum á vandaðri íslensku
  • afla gagna, vinna úr, meta og miðla upplýsingum á gagnrýninn hátt
  • beita sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum
  • átta sig á að tungumálið er stór þáttur í sjálfsmynd einstaklings og þjóðar
  • taka þátt í rökræðum um samfélagsleg málefni
  • beita skapandi og gagnrýninni hugsun í námi
  • vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðissamfélagi
  • efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína
  • skilja nærumhverfi sitt og stöðu þess í alþjóðlegu samhengi út frá fræðilegum forsendum
  • gera sér grein fyrir eigin ábyrgð í vist- og umhverfismálum og hvernig hann getur miðlað reynslu sinni og þekkingu til góðs í átt að sjálfbærni

Sameiginlegur kjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Danska DANS 2AA05(MA) 2BB04(MA) 0 9 0
Enska ENSK 2AA05(MA) 2BB05(MA) 0 10 0
Heilsa, lífsstíll HEIL 1HL02(MA) 1HN02(MA) 1HS01(MA) 1HÞ01(MA) 1HÖ01(MA) 1VÖ01(MA) 8 0 0
Íslenska ÍSLE 2MÁ05(MA) 3FR05(MA) 3LB05(MA) 3NR05(MA) 0 5 15
Líffræði LÍFF 1GL05(MA) 5 0 0
LÆSI LÆSI 2ME10(MA) 2NÁ10(MA) 0 20 0
Náms- og starfsval NÁMS 1AA01(MA) 1 0 0
Siðfræði SIÐF 2HS05(MA) 0 5 0
Einingafjöldi 78 14 49 15

Brautarkjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Enska ENSK 2BL04(MA) 3BÁ04(MA) 3BS04(MA) 3SB04(MA) 0 4 12
Eðlisvísindi EVÍS 1GR05(MA) 5 0 0
Íslenska ÍSLE 3MV04(MA) 0 0 4
Menning MENN 2LÖ04(MA) 2TU04(MA) 3AL04(MA) 0 8 4
Saga SAGA 2SÖ05(MA) 3MG05(MA) 0 5 5
Spænska SPÆN 1AA05(MA) 1BB05(MA) 10 0 0
Stærðfræði STÆR 2AJ05(MA) 2FF05 3LÁ05(MA) 0 10 5
Einingafjöldi 72 15 27 30

Bundið pakkaval
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Franska
Franska FRAN 1AA05(MA) 1BB05(MA) 1CC05(MA) 2DD05(MA) 2EE05(MA) 15 10 0
Einingafjöldi 25 15 10 0
Þýska
Þýska ÞÝSK 1AA05(MA) 1BB05(MA) 1CC05(MA) 2DD05(MA) 2EE05(MA) 15 10 0
Einingafjöldi 25 15 10 0

Frjálst val

Nemendur taka 25 einingar í vali, þar af skulu a.m.k. 10 einingar tilheyra sérgreinum brautar. Nemendur þurfa að hafa kröfur aðalnámskrár um hlutföll hæfniþrepa til hliðsjónar við val sitt.