algebra

Einingafjöldi: 6
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf með einkunn B eða hærra
Helstu efnisþættirnir eru talnareikningur, prósentureikningur, mengjaaðgerðir, liðun, þáttun, bókstafareikningur, bókstafabrot, veldi, rætur, lograr, jöfnur, ójöfnur, jöfnuhneppi, annars stigs jöfnur, talnalínan, algildi, bil á talnalínu, margliður og þáttun margliða. Aðaláhersla áfangans er á dæmareikning, afleiðslukerfi og röksemdafærslu stærðfræðinnar, m.a. með sönnunum á reglum í námsefninu. Einnig verður lögð áhersla á rétta notkun stærðfræðitákna og skipulagða framsetningu.

Þekkingarviðmið

  • tölum, forgangsröðun aðgerða, brotum og brotabrotum
  • hlutföllum, prósentum og einingaskiptum
  • mengjum og mengjaaðgerðum
  • frumtölum, frumþáttun, deilingu með afgangi, stærsta samdeili og minnsta samfeldi
  • liðun, þáttun og bókstafabrotum
  • veldum, rótum, logrum, velda-, róta- og lograreglum
  • jöfnum af fyrsta og öðru stigi auk jöfnuhneppa og ójöfnum af fyrsta stigi
  • algildum og algildisjöfnum
  • talnalínunni, bilum og hnitakerfinu
  • stigi, stuðlum, reikniaðgerðum og núllstöðvum margliða
  • notkun algengra stærðfræðitákna s.s. jafnaðarmerkis og sviga
  • skilgreiningum helstu hugtaka og sönnunum reglna í námsefninu

Leikniviðmið

  • nota allar algengar reiknireglur talnareiknings og bókstafareiknings
  • nota mengjaaðgerðir
  • frumþátta og átta sig á deilanleika út frá frumtölum
  • einfalda brot og brotabrot
  • liða og þátta stærðtákn og meðhöndla bókstafabrot
  • nota algildi, rætur, brotna veldisvísa og logra
  • beita velda-, rótar- og lograreglum
  • leysa ýmis konar jöfnur, ójöfnur og jöfnuhneppi
  • finna færslu á talnalínu og fjarlægð og miðpunkt á talnalínu og í hnitakerfi
  • nota margliðudeilingu
  • finna núllstöðvar margliða og nota þáttareglu til að þátta margliður
  • finna formerki margliða
  • nota algeng stærðfræðitákn s.s. jafnaðarmerki og sviga

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausnir
  • beita skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir, m.a. með því að setja upp jöfnur
  • klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
  • fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is