rúmfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÆR1AL06 (eða STÆR2AL06)
Meginefni áfangans er hnitarúmfræði og Evklíðsk rúmfræði. Helstu efnisþættir eru talnalínan, algildi, hnitakerfið, línan, fleygboginn, hringurinn, skurðpunktur grafa, frumhugtök og frumsendur Evklíðskrar rúmfræði, hornaföll, flatarmál og rúmmál. Aðaláhersla áfangans er á þjálfun í dæmareikningi úr þessum efnisatriðum.

Þekkingarviðmið

  • talnalínunni og hnitakerfinu
  • algildi og algildisjöfnum
  • eiginleikum línu, fleygboga og hrings í hnitakerfi
  • skurðpunktum tveggja grafa í hnitakerfi
  • frumhugtökum rúmfræðinnar
  • frumsendunum um samsíða línur og einshyrnda þríhyrninga og reglum sem leiða af þeim
  • hornaföllum af hvössum hornum
  • flatarmáli og rúmmáli ýmissa forma

Leikniviðmið

  • finna færslu á talnalínu og fjarlægð og miðpunkt á talnalínu og í hnitakerfi
  • nota algildi
  • finna og túlka eiginleika línu, fleygboga og hrings í hnitakerfi
  • teikna gröf jafna í hnitakerfi og finna skurðpunkta þeirra
  • leysa rúmfræðileg verkefni og þrautir
  • hagnýta hornaföll af hvössum hornum
  • vera nákvæmur í útreikningum og svörum
  • nota algeng stærðfræðitákn s.s. jafnaðarmerki, sviga og gráðumerki

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausnir
  • beita skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir, m.a. með því að setja upp jöfnur
  • klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
  • fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta
Nánari upplýsingar á námskrá.is