Klassísk tónfræði, hljómfræði og tónheyrn

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: Klassísk miðtónfræði og tónheyrn (M2)
Áfanginn leggur áherslu á að auka leikni í meðferð þríhljóma, með áherslu á molltóntegundir. Farið er í raddfærslu í hinum þremur myndum mollsins, tengsl hljóma úr þeim og hvernig raða má þeim saman. Einnig er farið í notkun díatónískra sjöundarhljóma og þar með undirbúning og lausn sjöunda, bæði í dúr- og molltóntegundum. Í tónheyrn er áhersla á tónlist í moll og byrjað er að syngja sjöundarhljóma. Einnig er farið að vinna með tvö hrynmynstur samtímis og syngja algenga tónstiga aðra en dúr og moll. Nemendur skulu hafa orðaforða og skilning til að geta tjáð sig um námsefnið í ræðu og riti. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni þar sem þeir nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru með forritum, á vef eða í bókum.

Þekkingarviðmið

  • meðferð þríhljóma í dúr og moll
  • tengslum hljóma úr þremur myndum mollsins og röðun þeirra
  • díatónískum sjöundarhljómum
  • hvernig undirbúningi og lausn sjöundahljóma skal háttað
  • öðrum algengum tónstigum en dúr og moll
  • orðaforða í tengslum við efni áfangans

Leikniviðmið

  • meðhöndla þríhljóma í dúr og moll
  • raddfæra í moll
  • undirbúa og leysa sjöundarhljóma í dúr og moll
  • syngja sjöundarhljóma

Hæfnisviðmið

  • hljómgreina algeng lög og verkefni
  • undirbúa og leysa sjöundarhljóma í dúr og moll
  • syngja beint af blaði verkefni sem hæfa áfanganum
  • vinna með tvö hrynmynstur samtímis
  • syngja tónstiga
Nánari upplýsingar á námskrá.is