yndislestur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Náttúru- og menningarlæsi
Nemendur kynnast fjölbreyttum heimi bókmennta, íslenskra og erlendra. Nemendur lesa nokkrar skáldsögur sem þeir velja í samráði við kennara. Annars vegar mæta nemendur í einkaviðtöl til kennara en hins vegar koma þeir saman í hóptímum, fjalla um sögur sínar og kynna fyrir nemendahópnum. Auk þess verða smásögur lesnar, þær ræddar og helstu bókmenntahugtök rifjuð upp. Í áfanganum er lögð áhersla á vinnusemi og sjálfstæð vinnubrögð nemenda.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi lestrar
  • að bókmenntir eru spegill samfélaga og sýna fjölbreytileika þeirra
  • helstu bókmenntahugtökunum
  • formi og innihaldi smásagna annars vegar og skáldsagna hins vegar

Leikniviðmið

  • greina smásögur og skáldsögur og átta sig á muninum á þeim
  • lesa á milli línanna
  • fjalla um bókmenntir
  • ígrunda, ræða og rökstyðja til að komast að niðurstöðu sem sett er fram á skýran hátt
  • vinna að fjölbreyttum og skapandi verkefnum er snúa að bókmenntum

Hæfnisviðmið

  • dýpka og auka lesskilning sinn á bókmenntum af ýmsu tagi og verða þar með færari lesandi
  • auka og bæta við orðaforða og málskilning
  • leysa fjölbreytt verkefni tengd bókmenntum
  • skrifa eigið efni og meta á gagnrýninn hátt verk annarra
  • dýpka skilning sinn á fjölbreyttum samfélögum og margbreytileika fólks í gegnum skáldskap
  • ræða um bókmenntir og gera grein fyrir máli sínu með rökum
Nánari upplýsingar á námskrá.is