Tilvistarstefnan

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í þessum áfanga verður fjallað um tilvistarstefnu í heimspeki í víðum skilningi. Reynt verður að grafast fyrir um tilgang lífsins, ef hann þá er einhver, hvernig best sé að nálgast þennan heim sem umlykur okkur og fólkið sem hann byggir. Fjallað verður um tilvistarstefnuna í sögulegum skilningi, af hverju hún sprettur upp á þeim tíma sem hún gerir og hvað tilvistarstefnan í raun og veru er. Fyrst og fremst mun þessi áfangi þó leitast við að svara þeim spurningum sem sækja á okkur dags daglega; til hvers lífið eiginlega er og hvernig og hvar eigum við að finna tilganginn á guðlausri og tæknivæddri tuttugustu og fyrstu öldinni?

Þekkingarviðmið

  • þeim sessi sem heimspeki og bókmenntir skipa í sögu mannkyns
  • helstu hugmyndum sem liggja til grundvallar tilvistarstefnunni

Leikniviðmið

  • rökræða og gagnrýna bókmennta- og heimspekitexta
  • greina og gagnrýna þjóðfélagsumræðu frá sjónarhóli heimspekinnar

Hæfnisviðmið

  • nálgast siðferðileg málefni af varúð og tillitssemi
  • tileinkað sér fræðileg vinnubrögð
Nánari upplýsingar á námskrá.is