Leikmynd, búningar og gervi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum verður farið í grunnatriði hönnunar í leikhúsi og áhersla lögð á heildstæða greiningu verks þar sem leikmynd og búningar eru birtingarmynd hennar. Kenndar verða ólíkar nálgunaraðferðir til leikmynda- og búningahönnunar og nemendur fá kynningu á helstu hönnuðum nútímaleikhússins sem og 20. aldarinnar. Áfanginn verður kenndur í samstarfi við leikmynda- og búningahönnuði hjá LA.

Þekkingarviðmið

  • lykilatriðum í greiningu verka og persóna fyrir leikmynda- og búningahönnun
  • helstu stefnum og áhrifavöldum í leikmynda- og búningahönnun
  • módelgerð og skissuteikningum
  • ferli búninga- og leikmyndahönnunar frá fyrstu hugmynd til framkvæmdar

Leikniviðmið

  • vinna lausnamiðað að útfærslu hugmynda
  • afla sér heimilda og efnis í samhengi við ákveðin verk
  • vinna með öðrum listrænum stjórnendum

Hæfnisviðmið

  • skila af sér skýrri hönnun fyrir leikmynd og búninga
  • rökstyðja leikmyndahönnun sína út frá greiningu verks
  • rökstyðja búningahönnun sína út frá greiningu einstakra persóna
  • geta í töluðu og rituðu máli gert grein fyrir tilgangi leikmynda- og búningahönnunar í leiksýningum
Nánari upplýsingar á námskrá.is