Skapandi skrif

Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Í áfanganum er lögð áhersla á að kynna nemendum hinar ýmsu aðferðir og möguleika ritlistarinnar. Unnið verður með ýmiskonar stílbrögð og texta og skoðað hvernig má endurspegla samfélagið í textasmíðum. Farið verður yfir uppbyggingu handrita sem og frásagna, persónusköpun og framvindu. Megináherslan er lögð á að nemendur æfist í ritun skapandi verka.

Þekkingarviðmið

  • grunnatriðum í ritlist
  • ólíkum leiðum sem hægt er að nýta sér í skrifum
  • einkennum mismunandi tegunda ritsmíða
  • hvernig ná má fram ólíkum blæbrigðum/hughrifum í ritsmíðum

Leikniviðmið

  • að taka eftir eigin hugmyndum og þróa þær af frjálsri tjáningu
  • þróa sinn eigin stíl af ígrundun
  • byggja upp texta með áhrifaríkum persónum og framvindu
  • finna hugmyndakveikjur í eigin lífi og samfélaginu
  • taka við gagnrýni á eigin verk og vinna úr henni

Hæfnisviðmið

  • samtvinna sköpunarkraft og sjálfsaga í vinnubrögðum sínum
  • skrifa ljóð, leiksenur, smásögur og söngtexta
  • geta greint og lagt mat á eigin textavinnu sem og annarra á uppbyggilegan og skilvirkan máta
  • greina mismunandi stíla í ritlist
  • tjá sig í töluðu og rituðu máli um uppbyggingu texta
Nánari upplýsingar á námskrá.is