algebra

Einingafjöldi: 6
Þrep: 1
Forkröfur: Forkröfur: Grunnskólapróf með einkunn C eða hærra
Meginefni áfangans er talnareikningur, prósentureikningur, mengjaaðgerðir, liðun, þáttun, bókstafareikningur, bókstafabrot, veldi, rætur, jöfnur, ójöfnur, jöfnuhneppi, annars stigs jöfnur og margliður. Aðaláhersla áfangans er á þjálfun í dæmareikningi úr þessum efnisatriðum.

Þekkingarviðmið

  • tölum, forgangsröðun aðgerða, brotum og brotabrotum
  • hlutföllum, prósentum og einingaskiptum
  • mengjum og mengjaaðgerðum
  • frumtölum og frumþáttun
  • liðun, þáttun og bókstafabrotum
  • veldum, rótum, velda- og rótareglum
  • jöfnum af fyrsta og öðru stigi auk jöfnuhneppa og ójöfnum af fyrsta stigi
  • stigi, stuðlum, reikniaðgerðum og núllstöðvum margliða
  • notkun algengra stærðfræðitákna s.s jafnaðarmerkis og sviga

Leikniviðmið

  • nota allar algengar reiknireglur talnareiknings og bókstafareiknings
  • nota mengjaaðgerðir
  • frumþátta og átta sig á deilanleika út frá frumtölum
  • einfalda brot og brotabrot
  • liða og þátta stærðtákn og meðhöndla bókstafabrot
  • nota rætur og brotna veldisvísa
  • beita velda- og rótarreglum
  • leysa ýmis konar jöfnur, ójöfnur og jöfnuhneppi
  • nota margliðudeilingu
  • finna núllstöðvar margliða og þátta margliður
  • nota algeng stærðfræðitákn s.s. jafnaðarmerki og sviga

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu
  • vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
  • beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausnir
  • beita skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir úr kunnuglegu samhengi, m.a. með því að setja upp jöfnur
  • klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is