Ferðamálafræði 1

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum verður fjallað um ferðamennsku ungs fólks, menningu, sögu, landafræði og náttúru Íslands en einkum Norðurlands og hvernig megi laða innlenda og erlenda ferðamenn að landsvæðinu. Fjallað er um undirstöðuþætti miðlunar á ferðakynningarefni og unnið munnlega og skriflega að verkefnum á öllum þeim tungumálum sem nemandinn lærir í skólanum eða hefur önnur tök á. Auk kynningarefnis sem nemendur gera munu þeir spreyta sig við leiðsögn á heimaslóðum.

Þekkingarviðmið

  • menningu og sögu þjóðarinnar og hvað af því getur laðað að erlenda ferðamenn, til dæmis sögustaðir
  • landafræði og náttúru landshlutans og helstu náttúruvættum
  • aðferðum, tækjum og tólum til að búa til einfalt og árangursríkt kynningarefni
  • mikilvægi staðgóðrar tungumálakunnáttu, jafnt íslensku sem erlendra mála, og færni til að beita málum við munnlega og skriflega kynningu
  • undirstöðuatriðum í framsögn, framkomu og upplestri ritaðs máls og frágangi mynda og texta í bæklingum og kynningarefni
  • gildi þess að skrifa margvíslega texta, meðal annars útdrátt og endursögn á ólíkum tungumálum

Leikniviðmið

  • flytja mál sitt frammi fyrir áheyrendum á þeim tungumálum sem notuð eru við hvert verkefni
  • greina skilmerkilega frá því sem fyrir augu ber í kynnisferðum, einnig á mismunandi
  • útbúa kynningarefni með myndum og texta
  • beita mismunandi aðferðum eftir ólíkum hópum viðtakenda

Hæfnisviðmið

  • segja með nákvæmni en áreynslulaust frá því helsta sem hrífa má ferðafólk
  • afla sér gagna á vefjum og bókum til að bæta kynningar sínar og kynningarefni
  • útbúa fjölbreytt ferðagögn
Nánari upplýsingar á námskrá.is