FORR2FO05

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÆR3FX06
Í áfanganum kynnast nemendur undirstöðuatriðum forritunar, e.t.v. með forritunarmálinu Java. Samspil vélbúnaðar og hugbúnaðar er skoðað og nemendur kynnast helstu hugtökum forritunar. Farið er yfir reikning milli talnakerfa, leifareikning og einföld röðunar reiknirit skoðuð. Nemendur þurfa að greina, hanna og smíða forrit sem leysa einföld verkefni, gjarnan stærðfræðitengd. Námsefni kemur að mestu frá kennara og notast er við ókeypis hugbúnað við lausn verkefna en nemendur þurfa sjálfir að hafa fartölvu í kennslustundum. Einnig kynnast nemendur umbreytingarforritinu LaTeX.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi talnakerfum.
  • samspili vélbúnaðar og hugbúnaðar
  • samspili textaritils, forritunarkóða og þýðanda
  • forritun og helstu aðgerðum og hugtökum s.s. breytum, föstum, flæðisstýringu, skilyrðissetningum, lykkjum, föllum, klösum/hlutum, reikniritum og grafísku notendaviðmóti

Leikniviðmið

  • umrita á milli talnakerfa
  • greina, hanna og smíða forrit við lausn einfaldra verkefna þar sem notast er við breytur af mismunandi tagi, skilyrðissetningar, lykkjur, föll, skipanaglugga eða grafískt notendaviðmót og klasa/hluti

Hæfnisviðmið

  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • reikna á milli talnakerfa
  • greina forritunarkóða og virkni hans
  • greina verkefni og síðan hanna og smíða forrit við lausn þeirra
  • setja forritunarkóða skipulega upp með skýringum og athugasemdum
  • geta sjálfstætt kynnt sér önnur forritunarmál
  • nýta einföld reiknirit við lausn verkefna
  • fylgja verklýsingum við smíði forrita
Nánari upplýsingar á námskrá.is