Línuleg algebra, val

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR3HL06 eða STÆR3HX06
Farið er í grundvallarhugtök í línulegri algebru sem nýtast nemendum í frekara námi í raunvísindum, t.a.m. stærð-, verk- og tölvunarfræði. Helstu efnisþættir áfangans eru línuleg jöfnuhneppi, vigurrúm og hlutrúm þeirra, línulegt óhæði og span vigra, línulegar varpanir, fylki og helstu aðgerðir á þeim, ákveður, eigingildi, hornalínugerningur og einföld dæmi um hagnýtingu línulegrar algebru. Kennslan fer fram í formi fyrirlestra og dæmatíma, en mikil áhersla er lögð á að nemendur gefi sér góðan tíma til þess að reikna dæmi og leysa verkefni með þeim aðferðum sem kenndar eru í áfanganum.

Þekkingarviðmið

  • línulegum jöfnuhneppum og lausnum þeirra
  • grundvallareiginleikum vigurrúma
  • fylkjum og helstu aðgerðum á þeim
  • einfaldri hagnýtingu á línulegri algebru

Leikniviðmið

  • leysa línuleg jöfnuhneppi
  • beita einföldum fylkjaaðgerðum
  • skrifa hagnýt verkefni upp á tungumáli línulegrar algebru, og leysa þau í kjölfarið

Hæfnisviðmið

  • leysa hagnýt verkefni með stærðfræðilegum aðferðum
  • lesa texta þar sem unnið er með stærðfræðilegar frumsendur og skilgreiningar
  • koma frá sér úrlausnum á stærðfræðilegum verkefnum með skiljanlegum hætti, jafnt í rituðu máli sem töluðu
Nánari upplýsingar á námskrá.is