Tækni leikhússins

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Markmið áfangans er að nemendur kynnist helstu tækjum sem notuð eru í ljós- og hljóðvinnu í leikhúsi. Einnig fá nemendur að kynnast þeim forritum sem notuð eru í hönnun og keyrslu á tæknibúnaði leikhússins. Farið verður í helstu undirstöðuatriði ljósahönnunar og hljóðblöndunar og fjallað um öll helstu öryggismál þessara þátta. Áfanginn verður kenndur af tæknimönnum og ljósahönnuðum á vegum Menningarfélags Akureyrar og fá nemendur að nýta sér tæknina sem þar er til staðar til námsins.

Þekkingarviðmið

  • grunnatriðum í ljósahönnun
  • grunnatriðum í hljóðblöndun
  • helstu keyrsluforritum leikhússins
  • ljósa- og hljóðtækni
  • mikilvægustu öryggisatriðum leikhússins

Leikniviðmið

  • setja upp ljós og hljóðbúnað fyrir leiksýningu
  • tryggja að öryggi í notkun á tækjabúnaðar sé til staðar
  • hanna einfalda lýsingu og hljóðblöndun sem styður við og auðgar uppbyggingu og framvindu leiksýningar
  • stjórna athygli áhorfandans á sviði

Hæfnisviðmið

  • tjá sig um og greina hönnun lýsingar og hljóðblöndunar í leikhúsi
  • hanna og stilla upp ljósum fyrir einfalda sýningu
  • útskýra með rökstuðningi tilgang lýsingar fyrir ákveðnar senur
  • keyra ljós og hljóð á einföldum sýningum
Nánari upplýsingar á námskrá.is