Söngur og túlkun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Farið verður í hlutverk söngs í leiksýningum, uppbyggingu og grundvallarforsendur söngleikja og tónlistar í leikhúsi. Áhersla er lögð á túlkun og tjáningu í söng ásamt kennslu á helstu undirstöðuatriðum söngs. Einnig verður fjallað um raddheilbrigði og beitingu raddarinnar.

Þekkingarviðmið

  • undirstöðuatriðum og grunntækni í söng
  • aðferðum við túlkun og tjáningu söngtexta á leiksviði
  • samvinnu söngs og leiks á leiksviði
  • mismunandi stílum söngleikjaformsins
  • raddheilbrigði

Leikniviðmið

  • hita röddina upp sem hljóðfæri og verða meðvitaður um mikilvægi þess að hugsa vel um hana
  • greina söngtexta og tilgang þeirra í söguþræði leikverks
  • beita rödd í söng og leik
  • nýta tækniæfingar til að bæta söng sinn enn frekar

Hæfnisviðmið

  • flytja lag úr söngleik af innlifun á áhrifaríkan og skýran máta
  • tengja saman rödd og tónheyrn
  • greina og segja frá ólíkum aðferðum til að túlka og tjá texta í söng
  • geta sagt frá og skrifað um söngleiki sem sviðslistaform
  • nýta þekkingu sína í notkun á tónlist í leikhúsi
Nánari upplýsingar á námskrá.is