lífeðlisfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÍFF1GL05 og EÐLI2AO05
Byrjað er á að fjalla um helstu vefjagerðir dýra og hugtakið samvægi. Meginefni áfangans er svo mannslíkaminn í heild sinni. Öll helstu líffærakerfi mannsins eru tekin fyrir; meltingarfærakerfi, taugakerfi, skynfæri, innkirtlakerfi, stoðkerfi, loftskiptakerfi, hringrásarkerfi, þveitikerfi, ónæmiskerfi og æxlunarfærakerfi. Einstök líffæri innan hvers líffærakerfis eru skoðuð með áherslu á staðsetningu, hlutverk, gerð og virkni. Starfsemi líffæra og líffærakerfa er skoðuð í samhengi við samvægi og dæmi tekin um þegar samvægið fer úr skorðum. Aðaláhersla áfangans er á lífeðlisfræði mannsins, þó nokkur dæmi séu tekin hjá öðrum dýrategundum til samanburðar.

Þekkingarviðmið

  • hvaða líffæri raðast saman innan hvers líffærakerfis
  • staðsetningu og hlutfallslega stærð líffæra í líkamanum
  • helstu vefjagerðum líffæra
  • eðlilegri virkni hvers líffæris og einhver dæmi um þegar virkni líffæra fer úr skorðum
  • samstarfi og samhæfingu líffæra
  • samvægi innan líkamans

Leikniviðmið

  • þekkja líffæri hvers líffærakerfis
  • geta staðsett hvert líffæri innan mannslíkamans
  • tengja vefjagerðir líffæra við starfsemi þeirra
  • greina óeðlilega starfsemi líffæra frá eðlilegri
  • þekkja ýmsa innri og utanaðkomandi áhrifavalda á starfsemi líffæra
  • skilja hvernig hvert líffæri er líkamanum nauðsynlegt til að mynda heild sem virkar eðlilega og geta tengt saman starfsemi ólíkra líffærakerfa

Hæfnisviðmið

  • skilja byggingu líffæra
  • skilja tengsl einstakra líffæra og líffærakerfa
  • átta sig á staðsetningu líffæra
  • átta sig á þegar að starfsemi einstakra líffæra verður óeðlileg
  • geta gert sér grein fyrir hvaða afleiðingar óeðlileg starfsemi líffæra hefur á önnur líffæri og líkamann í heild sinni
  • nýta sér þekkingu sína í daglegu líf
Nánari upplýsingar á námskrá.is