Mikil áhersla er lögð á nám í heilbrigðistengdum greinum s.s. eðlisfræði, efnafræði og líffræði. Nokkuð svigrúm er til sérhæfingar í vali á brautinni. Brautin veitir góðan almennan undirbúning fyrir nám á háskólastigi og hentar sérstaklega vel þeim nemendum sem hyggja á nám í heilbrigðistengdum greinum, til dæmis í læknisfræði, hjúkrunarfræði, íþróttafræði, næringarfræði og sálfræði.

Forkröfur

Almenn inntökuskilyrði eru að nemendur hafi hlotið B eða hærra í ensku, íslensku og stærðfræði á grunnskólaprófi. Ef fleiri sækja um skólann en hægt er að innrita áskilur skólinn sér rétt til að velja þá nemendur sem hann telur hafa bestan undirbúning hverju sinni. Nánar er kveðið á um inntökuskilyrði í skólanámskrá.

Skipulag

Nám á heilbrigðisbraut er fyrst og fremst bóklegt og áhersla lögð á nám í raungreinum og heilbrigðisgreinum. Skipulagið byggir bæði á bekkjar- og áfangakerfi.

Námsmat

Í skólanum er lögð áhersla á fjölbreyttar aðferðir við námsmat sem fer fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun kennara, í samræmi við skólanámskrá.

Reglur um námsframvindu

Einingafjöldi á brautinni er 203 einingar. Fullt nám er að meðaltali 34 einingar á önn. Lágmarkseinkunn er 5 í öllum áföngum. Í áfangalýsingum koma fram skilyrði um undanfara og í skólanámskrá er kveðið á um reglur um námsframvindu og skólasókn.

Hæfnisviðmið

  • takast á við nám á háskólastigi, sérstaklega í raungreinum og heilbrigðisgreinum
  • taka þátt í upplýstri umræðu um umhverfismál og lífsskilyrði jarðarbúa, vísindi og tækni
  • geta tjáð sig skýrt og skipulega í ræðu og riti og fært rök fyrir skoðunum sínum á vandaðri íslensku
  • hafa tileinkað sér tölulæsi og meðferð talna
  • beita sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum
  • afla gagna, vinna úr, meta og miðla upplýsingum á gagnrýninn hátt
  • beita skapandi og gagnrýninni hugsun
  • vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðissamfélagi
  • efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína
  • afla sér nýrrar þekkingar og viðhalda henni
  • gera sér grein fyrir eigin ábyrgð í vist- og umhverfismálum og hvernig hann getur miðlað reynslu sinni og þekkingu til góðs í átt að sjálfbærni
  • nýta sér almenna og góða þekkingu á náttúruvísindum

Sameiginlegur kjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Danska DANS 2AA05(MA) 2BB04(MA) 0 9 0
Enska ENSK 2AA05(MA) 2BB05(MA) 0 10 0
Heilsa, lífsstíll HEIL 1HL02(MA) 1HN02(MA) 1HS01(MA) 1HÞ01(MA) 1HÖ01(MA) 1VÖ01(MA) 8 0 0
Íslenska ÍSLE 2MÁ05(MA) 3FR05(MA) 3LB05(MA) 3NR05(MA) 0 5 15
Líffræði LÍFF 1GL05(MA) 5 0 0
LÆSI LÆSI 2ME10(MA) 2NÁ10(MA) 0 20 0
Náms- og starfsval NÁMS 1AA01(MA) 1 0 0
Siðfræði SIÐF 2HS05(MA) 0 5 0
Einingafjöldi 78 14 49 15

Brautarkjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Eðlisfræði EÐLI 1AF04(MA) 2TV06(MA) 3RA05(MA) 4 6 5
Efnafræði EFNA 1AA05(MA) 2AB05(MA) 3LE05 3LR05(MA) 5 5 10
Enska ENSK 3NE05(MA) 0 0 5
Líffræði LÍFF 2FM05(MA) 3AN05(MA) 3LE05(MA) 0 5 10
Saga SAGA 2SÖ05(MA) 0 5 0
Sálfræði SÁLF 3HE05(MA) 0 0 5
Stærðfræði STÆR 2AL05 2RU05(MA) 3FX05 3GX05(MA) 3LP05(MA) 0 10 15
Einingafjöldi 90 9 31 50

Bundið pakkaval
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Þriðja mál
Franska FRAN 1AA05(MA) 1BB05(MA) 1CC05(MA) 15 0 0
Einingafjöldi 15 15 0 0
Þýska ÞÝSK 1AA05(MA) 1BB05(MA) 1CC05(MA) 15 0 0
Einingafjöldi 15 15 0 0

Frjálst val

Nemendur taka 25 einingar í vali, þar af skulu a.m.k. 15 einingar tilheyra sérgreinum brautarinnar. Nemendur þurfa að hafa kröfur aðalnámskrár um hlutföll hæfniþrepa til hliðsjónar við val sitt.